Þrír af bestu knattspyrnumönnum Palestínu hafa látið lífið í átökunum sem nú standa yfir á Gaza-svæðinu.
Þetta kemur fram á aipsmedia.com en greinin er skrifuð af Muntaser Dkaidek, blaðamanni í Jerúsalem.
Leikmennirnir sem um ræðir voru þeir Ayman Alkurd hjá Falasteen Al-Ryadi, Shadi Sbakhe frá Khadamat Alniserat, og Wajeh Moshtahe úr liði Ittihad Alshojaeya.
Alkurd var núverandi landsliðmaður Palestínu, sem situr í 180. sæti heimslista FIFA.
Líkt og flestir vita, hafa miklar sprengjuárásir Ísraelshers orsakað dauða fjölda borgara, en sprengjuregnið hefur meðal annars dunið á Rafah leikvanginum, sem er heimavöllur Ahli Alenserat liðsins, sem er eitt af toppliðum landsins.