Eiður með 100. leikinn í kvöld?

Eiður verður í eldlínunni hjá Börsungum í kvöld.
Eiður verður í eldlínunni hjá Börsungum í kvöld. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen leikur sinn 100. leik með Barcelona komi hann við sögu hjá Katalóníuliðinu í kvöld þegar það mætir Mallorca í fyrri viðureign liðanna í undanúrslitum spænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu. Hann lék sinn fyrsta leik með Barcelona þann 20. ágúst 2006 gegn Espanyol en Eiður samdi við Barcelona í júnímánuði 2006 og samdi til fjögurra ára.

Eiður hefur spilað 59 deildaleiki með Börsungum, 20 í Meistaradeildinni, 16 í spænsku bikarkeppninni, 2 í heimsmeistarkeppni félagsliða og 1 leik í meistarakeppni Spánar og meistarakeppni UEFA.

Eiður hefur skorað 19 mörk í þessum leikjum og þar af hefur hann gert 4 mörk á þessari leiktíð og hefur lagt upp þrjú mörk fyrir félaga sína.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert