Samkvæmt tilkynningu frá Landsbankanum (NBI hf), hefur bankinn afsalað sér markaðs- og nafnarétti á Landsbankadeildinni. Hann mun þó áfram styðja við íþróttalíf á landinu með samstarfssamningum við íþróttafélög.
Tilkynningin frá Landsbankanum:
„Landsbankinn (NBI hf.) verður ekki bakhjarl efstu deilda karla og kvenna á Íslandsmótinu í knattspyrnu sumarið 2009 og hefur afsalað sér markaðs- og nafnarétti á Landsbankadeildinni. Bankastjórn Landsbankans telur ekki rétt að verja háum upphæðum í kaup á markaðsrétti að deildunum með tilheyrandi markaðsherferð. Landsbankinn mun eftir sem áður styðja íslenskt íþróttalíf með því að endurnýja samstarfssamninga við fjölmörg íþróttafélög um land allt.
KSÍ hefur undanfarin ár framselt útsendingar- og markaðsrétt vegna íslenskrar knattspyrnu til þýska fyrirtækisins Sportfive. Þýska fyrirtækið hefur síðan endurselt bankanum markaðsrétt á efstu deildum karla og kvenna.
Landsbankinn mun kappkosta að styðja íslenskt íþróttalíf og við núverandi aðstæður verður það best gert í gegnum útibúin með beinum samstarfssamningum við íþróttafélög hringinn í kringum landið.
Bankinn hefur undanfarið endurnýjað samninga við flest þau íþróttafélög þar sem bankinn hefur verið leiðandi bakhjarl á síðustu árum. Í slíku samstarfi leggur bankinn mikla áherslu á að styðja barna- og unglingastarf. Samningarnir taka mið af breyttum aðstæðum. Undantekningalítið nýtast styrkirnir til að standa straum af þjálfun iðkenda á öllum aldri.“