Bjarni Hólm til Keflvíkinga

Bjarni Hólm Aðalsteinsson stekkur hæst í leik ÍBV gegn Víkingi …
Bjarni Hólm Aðalsteinsson stekkur hæst í leik ÍBV gegn Víkingi Ó. í 1. deildinni síðasta sumar. mbl.is/Sigfús

Bjarni Hólm Aðalsteinsson, sem hefur leikið með ÍBV undanfarin ár, gekk í dag til liðs við úrvalsdeildarlið Keflvíkinga í knattspyrnu og samdi til tveggja ára.

Fótbolti.net skýrir frá þessu og segir að þetta hafi verið tilkynnt á fréttamannafundi síðdegis í dag.

Bjarni Hólm er 24 ára gamall Seyðfirðingur sem hefur leikið með Hugin og Fram, og síðan með ÍBV síðustu fjögur árin. Hann var í stóru hlutverki í liði Eyjamanna sem sigraði í 1. deildinni á síðasta keppnistímabili.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka