Þorsteinn í formannsstólinn hjá Grindavík

Þorsteinn Gunnarsson er orðinn formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur.
Þorsteinn Gunnarsson er orðinn formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur. mbl.is

Þorsteinn Gunnarsson, formaður Samtaka Íþróttafréttamanna og fyrrum íþróttafréttamaður á Stöð 2, var í gærkvöld kjörinn nýr formaður knattspyrnudeildar Grindavíkur á aðalfundi knattspyrnudeildarinnar.

Jón H. Gíslason gaf ekki kost á sér til endurkjörs sem formaður og var Þorsteinn kjörinn í hans stað en Þorsteinn er í þjálfarateymi Grindvíkinga og sinnir markvarðarþjálfun hjá félaginu, enda gamall markvörður þar á ferð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert