Þróttur úr Reykjavík vann sigur gegn ÍBV í leik liðanna í Lengjubikar karla í knattspyrnu í dag, 3:1, en leikurinn fór fram í Egilshöllinni.
Viðar Örn Kjartansson kom Eyjamönnum yfir en Hallur Hallsson jafnaði metin með þrumuskoti utan af velli. Oddur Bjarnason kom Þrótti síðan yfir áður en Þórður Steinar Hreiðarsson gulltryggði sigur Þróttar.
FH og Þróttur eru efstir í riðlinum með 3 stig hvort lið, en Haukar eða Víkingur Ó. geta komist að hlið þeirra með sigri í dag, en liðin mætast í Akraneshöllinni í dag.