Grindvíkingar lögðu Framara að velli, 2:0, í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, þegar liðin áttust við í Egilshöllinni í kvöld.
Það var Sveinbjörn Jónasson, sóknarmaður frá Seyðisfirði sem Grindvíkingar fengu til sín frá Fjarðabyggð í vetur, sem skoraði bæði mörkin í sínum fyrsta mótsleik með þeim. Hann skoraði á 48. mínútu og aftur um miðjan síðari hálfleik, í bæði skiptin eftir sendingar frá Scott Ramsay.