KR-ingar urðu í kvöld Reykjavíkurmeistarar í knattspyrnu karla þegar þeir báru sigurorð af Fylkismönnum, 3:1, í úrslitaleik sem háður var í Egilshöllinni. Pape Mamadou Faye kom Fylki yfir í fyrri hálfleik en Guðmundur Pétursson, Óskar Örn Hauksson og Jónas Guðni Sævarsson svöruðu fyrir KR-inga í seinni hálfleik.