Keflvíkingar með fjögur gegn Fram

Jóhann B. Guðmundsson skoraði tvívegis í kvöld.
Jóhann B. Guðmundsson skoraði tvívegis í kvöld. mbl.is/Víkurfréttir

Keflvíkingar unnu öruggan sigur á Frömurum, 4:1, þegar liðin mættust í kvöld í deildabikarkeppni karla í knattspyrnu, Lengjubikarnum, í Reykjaneshöllinni.

Jón Gunnar Eysteinsson kom Keflvíkingum yfir og Jóhann B. Guðmundsson bætti við tveimur mörkum í fyrri hálfleik og staðan í hléi því 3:0.

Hörður Sveinsson skoraði fjórða mark Keflvíkinga í seinni hálfleik áður en Ívar Björnsson lagaði stöðuna fyrir Framara.

Keflvíkingar hafa unnið alla þrjá leiki sína í riðlinum og eru með 9 stig en Framarar eru hinsvegar í fjórða sæti riðilsins með 3 stig eftir 3 leiki.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert