Enn ein forföllin hafa orðið hjá skoska landsliðinu í knattspyrnu en í dag dró Stephen McManus fyrirliði Celtic sig út úr hópnum fyrir leik Skota gegn Hollendingum í undankeppni HM sem fram fer í Amsterdam á laugardagskvöldið. Skotar gera sér vonir um að McManus verði búinn að ná sér af meiðslunum fyrir leikinn gegn Íslendingum í næstu viku.
McManus er fimmti leikmaðurinn sem heltist úr hópi Skota en áður höfðu Krist Commons, Paul Hartley, David Weir og Kirk Broadfoot dottið út úr hópnum sökum meiðsla.