Franski knattspyrnumaðurinn Sylvain Soumare skrifaði undir samning við Grindavík í dag en hann hefur verið til reynslu hjá félaginu undanfarnar tvær vikur. Samningurinn gildir út þessa leiktíð.
Sylvain Soumare er 26 ára örvfættur vængmaður og verður í búningi nr. 18. Hann lék síðast með Olivais E Moscavide í portúgölsku 2. deildinni en fékk sig lausan undan samningi um áramótin. Áður lék hann með SC Vinea Eisenstadt í Austurríki en hann hóf ferilinn með US Creiteil í Frakklandi.
Soumare er annar leikmaðurinn sem semur við Grindavík á skömmum tíma en á dögunum gekk Þórarinn Brynjar Kristjánsson til liðs við félagið.