Íslandsmeistaralið FH sigraði Val í 8 liða úrslitum deildabikarkeppni karla í knattspyrnu í kvöld. FH mætir Fylki í undanúrslitum á mánudaginn og Breiðablik leikur gegn HK.
Tryggvi Guðmundsson skoraði fyrsta mark leiksins á 31. mínútu og þanni var staðan í hálfleik. Matthías Vilhjálmsson kom FH í 2:0 á 57 og Björn Daníel Sverrisson innsiglaði öruggan sigur FH með marki á 90. mínútu.