Ragnar Sigurðsson gulltryggði IFK Gautaborg sigur Gefle IF, 3:0, í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöldi þegar hann skoraði á 64. mínútu. Þetta er annað mark Ragnars í deildinni í vor. Með sigrinum komst IFK upp í efsta sæti deildarinnar, hefur 15 stig að loknum átta leikjum.
Helsingborg og Elfsborg eru einnig með 15 stig en hafa aðeins leikið sjö leiki, hvort félag.
Ragnar krækti sér í gult spjald á síðustu mínútu leiksins.
Hjálmar Jónsson kom ekkert við sögu í leiknum í liði IFK.