Guðmundur Benediktsson kom inn á í lið KR í 2:1 sigrinum á Fjölni og fékk frábærar móttökur hjá stuðningsmönnum félagsins. Guðmundur er ánægður með að vera kominn aftur í raðir KR en fannst KR-liðið ekki sýna sitt besta.
„Frammistaðan var ekki góð. Sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá vorum við ekki að láta boltann ganga á milli manna. Þó við höfum fengið einhver færi í upphafi leiks þá vorum við ekki að spila okkur í gegnum þá. Við verðum að gera miklu betur en þetta. Auk þess höfum við fengið á okkur mark í hverjum einasta leik og það gengur náttúrulega ekki ef þú ætlar að vinna marga leiki,“ sagði Guðmundur í samtali við mbl.is.