Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, hefur gert fimm breytingar á landsliðshópnum sem mætir Makedóníu á miðvikudaginn í undankeppni HM 2010. Inn í hópinn koma þeir Jóhann Berg Guðmundsson, Hjálmar Jónsson, Guðmundur Steinarsson, Davíð Þór Viðarsson og Rúrik Gíslason. Koma þeir í stað Hermanns Hreiðarssonar, Indriða Sigurðssonar og Arons Einars Gunnarssonar sem eru í leikbanni, Eiður Smári Guðjohnsen er meiddur og þá dró Theódór Elmar Bjarnason sig út úr hópnum.
Leikurinn við Makedóníu hefst kl. 15.45 á miðvikudag í Skopje.
Hópurinn sem fer til Makedóníu.