Stefán aftur til Svíþjóðar?

Stefán í leik með Nörrköping.
Stefán í leik með Nörrköping. mbl.is

„Þetta verður bara 50/50 þangað til ég er búinn að svara,“ sagði knattspyrnumaðurinn Stefán Þór Þórðarson en hann er hugsanlega á leið aftur til síns gamla félags í Svíþjóð, Norrköping. 

„Ég er búinn að vera að fara yfir málin með minni fjölskyldu og ef af þessu verður þá mun ég fara í tvo mánuði. Það er samt best að segja sem minnst þangað til maður er búinn að taka ákvörðun en ég er búinn að lofa að gefa endanlegt svar fljótlega,“ sagði Stefán Þór í samtali við Morgunblaðið í gær.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert