Bikarmeistarar KR sækja 2. deildarlið Víðis úr Garði heim í 16-liða úrslitum VISA-bikarkeppni karla í knattspyrnu karla en dregið var í hádeginu í höfuðstöðvum KSÍ í Laugardal. Íslandsmeistarar FH fara til Vestmannaeyja og leika við ÍBV og 2. deildarlið Hattar leikur við Breiðablik á útivelli. Þá mætast HK og Reynir Sandgerði á Kópavogsvelli.
Dráttur 16-liða úrslitanna er sem hér segir:
Fram - Grindavík
Breiðablik - Höttur
ÍBV - FH
Fylkir - Fjarðabyggð
Valur - KA
Víðir - KR
HK - Reynir Sandgerði
Keflavík - Þór Ak.
Viðureign HK og Reynis annarsvegar og Víðis og KR hinsvegar fara fram mánudaginn 6. júlí. Aðrir leikir verða háðir daginn áður.