Herminator invitational, styrktargolfmót Hermanns Hreiðarssonar, fór fram í blíðskaparveðri í Vestmannaeyjum í dag. Þeir voru vígalegir þegar þeir lögðu af stað til keppni á mótinu, þeir Birkir Kristinsson fyrrum landsliðsmarkvörður, Þorsteinn Hallgrímsson mótsstjóri, Hermann Hreiðarsson landsliðsfyrirliði og leikmaður Portsmouth, Sol Campbell, miðvörður enska landsliðsins og Portsmouth, og Eiður Smári Guðjohnsen, leikmaður Barcelona.