Selfoss komst í efsta sætið 1. deildar karla í knattspyrnu með 2:1 sigri á Fjarðabyggð í dag. Sævar Þór Gíslason gerði bæði mörk heimamanna sem léku einum færri lungað úr leiknum.
0:1 Gestirnir úr Fjarðabyggð komust í 1:0 með marki Jóhanns R. Benediktssonar úr vítaspyrnu snemma leiks og misstu heimamenn þá Stefán R. Guðlaugsson af velli með rautt spjald.
1:1 Einum færri tókst heimamönnum að jafna metin og er staðan 1:1 í hálfleik. Sævar Þór Gíslason var þar á ferð. Að sögn heimamanna á Selfossi er þetta hörkuleikur sem verið hefur í jafnvægi.
2:1 Sævar Þór Gíslason skoraði annað mark sitt og heimamanna úr vítaspyrnu í upphafi síðari hálfleiks.
Með sigrinum eru Selfyssingar komnir með 19 stig eftir átta umferðir en Haukar eru með 16 í öðru sæti.