Þrír leikir fóru fram í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld. ÍR og HK mættust í Mjóddinni, Víkingur Ó. og Víkingur R. í Ólafsvík og Haukar mættu Leikni R. á Ásvöllum. Reykjavíkurliðunum gekk vel í kvöld. ÍR-ingar sigruðu HK 3:1, Víkingur R burstaði Víking í Ólafsvík 4:1 og Leiknir náði jafntefli við Hauka 1:1. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
20.00 ÍR - HK 3:1
- Leiknum er lokið með sigri ÍR 3:1.
3:1 Árni Freyr Guðnason skoraði þriðja mark ÍR á 79. mínútu með skalla frá vítateig en markvörður HK var illa staðsettur.
2:1 ÍR-ingar sluppu með skrekkinn þegar Rúnar Már Sigurjónsson skaut fram hjá úr vítaspyrnu á 35. mínútu.
2:1 ÍR-ingar eru komnir yfir. Haukur Ólafsson skoraði úr vítaspyrnu á 19. mínútu. Vítaspyrnan var dæmt vegna þess að knötturinn fór í hönd eins leikmanns HK.
1:1 Það tók ÍR-inga ekki langan tíma að kvitta. Eyþór Guðnason fyrrum leikmaður HK fékk boltann innan vítateigs eftir varnarmistök og þrumaði honum í hornið.
0:1 Calum Þór Bett þrumaði knettinum í netið hjá Breiðhyltingum á 5. mínútu eftir undirbúning Leifs Andra Leifssonar. Annað glæsimark hjá Bett á skömmum tíma.
20.00 Víkingur Ó. - Víkingur R. 1:4
- Leiknum er lokið með sigri Víkinga frá Reykjavík 4:1.
1:4 Ólsurum tókst að klóra í bakkann á 87. mínútu og þar var að verki Fannar Hilmarsson með sitt 4 mark í síðustu 3 leikjum.
0:4 Gestirnir eru ekki hættir í Ólafsvík. Marteinn Briem var að bæta við fjórða markinu á 70. mínútu.
0:3 Daninn fullkomnaði þrennu sína á 44. mínútu þegar hann lagði boltann í netið af stuttu færi.
0:2 Jakob Spangsberg var aftur á ferðinni á 18. mínútu. Komst í færi eftir varnarmistök og þrumaði knettinum í stöngina og inn.
0:1 Gestirnir úr Fossvoginum hafa tekið forystuna í Ólafsvík. Daninn Jakob Spangsberg skoraði eftir hornspyrnu á 10. mínútu. Enn og aftur fá Ólsarar á sig mark á fyrstu 10 mínútum.
20.00 Haukar - Leiknir R. 1:1
Leiknum er lokið með jafntefli 1:1.
1:1 Hafnfirðingum hefur tekist að jafna metin. Hilmar Geir Eiðsson skoraði með frábæru skoti af um 30 metra færi.
0:1 Breiðhyltingar eru komnir með forystu á Ásvöllum í Hafnarfirði. Skoruðu þeir úr vítaspyrnu á 58. mínútu og þar var að verki Fannar Þór Arnarsson.
- Þrátt fyrir nokkuð fjörugan fyrri hálfleik tókst liðunum ekki að skora.
- Leikurinn í Hafnarfirðinum hófst 15 mínútum á eftir áætlun.