Selfoss hélt áfram sigurgöngu sinni í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld og sigraði ÍR, 2:0, á Selfossvelli. Mörkin komu seint í leiknum en þau gerðu Ingólfur Þórarinsson og Hjörtur Hjartarson.
Selfoss er þá með 29 stig á toppnum, sjö stigum meira en Fjarðabyggð sem er í öðru sæti. ÍR er áfram í 8. sætinu með 16 stig.
Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
20.00 Selfoss - ÍR 2:0
45. Staðan 0:0 í hálfleik eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik.
78. Ingólfur Þórarinsson, söngvarinn góðkunni, kom Selfyssingum yfir, 1:0, þegar aðeins 12 mínútur voru eftir.
81. Íþróttafréttamaðurinn Hjörtur Júlíus Hjartarson kom inná sem varamaður og skoraði aðeins þremur mínútum síðar, 2:0.