Stefán Þórðarson skoraði fyrir Norrköping í 5:1 sigri liðsins gegn Assyriska í sænsku 1. deildinni í fótbolta í kvöld. Stefán skoraði á 19. mínútu en hann hefur skorað tvö mörk í fimm deildarleikjum.
Gunnar Þór Gunnarsson var í byrjunarliði Norrköping.
Norrköping færðist aðeins frá fallsvæðinu með sigrinum en liðið er með 18 stig en tvö neðstu liðin eru með 15 og 16 stig.