Baldur valinn í íslenska landsliðið

Baldur Sigurðsson í leik með KR-ingum gegn Larssia í Evrópudeildinni.
Baldur Sigurðsson í leik með KR-ingum gegn Larssia í Evrópudeildinni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

KR-ingurinn Baldur Sigurðsson hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir vináttuleikinn gegn Slóvökum sem fram fer á Laugardalsvellinum annað kvöld. Baldur tekur sæti Ragnars Sigurðssonar úr IFK Gautaborg sem á við veikindi að stríða.

Baldur, sem hefur leikið vel með KR-ingum í sumar, er nýliði í íslenska A-landsliðinu en hann á að baki 5 leiki með U21 árs landsliðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert