Birkir Bjarnason skoraði fyrir Viking frá Stavanger í 2:1-sigri liðsins gegn Molde í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Birkir skoraði með föstu skoti úr vítateignum eftir fyrirgjöf frá vinstri og er þetta sjötta mark hans á leiktíðinni. Indriði Sigurðsson lék í vörn Viking sem er í 7. sæti með 30 stig en Rosenborg er efst með 48 stig.
Þetta er sjötta mark Birkis á tímabilinu fyrir Viking og er hann markahæsti leikmaður liðsins.