Haukar lögðu Völsung 4:1 í fyrri leik liðanna um sæti í Pepsi-deild kvenna í dag. FH og ÍBV gerðu markalaust jafntefli í hinum leiknum.
Haukar eru því í góðum málum fyrir síðari leikinn sem verður á Húsavík á miðvikudaginn. Allt er hins vegar í járnum í hinni viðureigninni en FH mætir ÍBV í Eyjum á miðvikudaginn.