Axel Witsel leikmaður fótboltaliðsins Standard Liege í
Belgíu var í gær úrskurðaður í 11 leikja bann vegna atviks sem átti sér stað um
s.l. helgi. Witsel „tæklaði“ Marcin
Wasilevski leikmann Anderlecht með þeim afleiðingum að pólski bakvörðurinn
brotnaði afar illa á hægra fæti. Hlaut hann opið beinbrot á sköflungnum og verður
hann frá keppni í allt að 12 mánuði.
Myndband af atvikinu á youtube.
„Þetta var óhapp. Ég gerði þetta ekki með vilja og ég spila ekki fótbolta til þess að brjóta bein í mótherjanum,“ sagði Witsel í gær en stuðningsmenn Anderlecht hafa sent honum ýmsar hótanir á undanförnum dögum. Þar á meðal líflátshótanir.
Witsel getur ekki leikið með Standard Liege fyrr en í lok nóvember og missir hann af 10 deildarleikjum og einum bikarleik.
Wasilevski hefur farið í eina aðgerð á fætinum og fer hann í aðra aðgerð fljótlega.