Ísland burstaði N-Írland

Jóhann Berg Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið.
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði tvö mörk fyrir íslenska liðið. mbl.is/Golli

Íslenska U21 ára landslið karla í knattspyrnu vann í kvöld frábæran sigur á N-Írum á útivelli, 6:2, í undankeppni Evrópumótsins. Jóhann Berg Guðmundsson og Rúrik Gíslason skoraði tvö mörk hvor og þeir Bjarni Þór Viðarsson, Aron Einar Gunnarsson, Jóhann Berg Guðmundsson og Alfreð Finnbogason gerðu sitt markið hver en Íslendingar voru 4:0 yfir í hálfleik og komust í 5:0 í byrjun seinni hálfleiks.

Íslendingar hafa þar með 3 stig eftir tvo leiki en þeir töpuðu fyrir Tékkum, 2:0, í fyrsta leik sínum á KR-vellinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert