,,Ég var virkilega ánægður með sigur liðsins. Hvað mig varðar þá þarf ég tíma til að aðlagast hlutunum. Þetta er allt nýtt fyrir mér, öðruvísi leikstíll og öðruvísi fótbolti en ég er viss um að eftir nokkrar vikur þá verð ég kominn vel inn í hlutina og þið sjáið réttan Guðjohnsen," segir Eiður Smári á vef Mónakó en hann lék sinn fyrsta leik með liðinu í gærkvöld.
Eiður Smári lék í 85 mínútur þegar Mónakó sigraði Paris SG, 2:0. Eiður, sem á dögunum skrifaði undir tveggja ára samning við Mónakó, hafði frekar hægt um sig í leiknum.
,,Það er ekki mikilvægast hvernig ég spilaði heldur liðið og ég var virkilega ánægður með sigur liðsins,“ sagði Eiður en næsti leikur Mónakó er gegn Nice á útivelli um næstu helgi.