Eiður og félagar töpuðu á heimavelli

Eiður Guðjohnsen lék í 63 mínútur með Mónakó í kvöld.
Eiður Guðjohnsen lék í 63 mínútur með Mónakó í kvöld. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen lék fyrstu 63 mínúturnar með Mónakó í kvöld þegar liðið tapaði á heimavelli fyrir St.Etienne, 1:2, í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Þetta var fyrsti tapleikur Mónakó á heimavelli á leiktíðinni en annar tapleikur liðsins í röð en Mónakó tapaði í vikunni fyrir Nantes, 2:0, í deildabikarnum.

Veigar Páll Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Nancy sem sigraði Sochaux, 2:1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert