Rosenborg frá Þrándheimi fagnaði meistaratitlinum í norsku
úrvalsdeildinni í fótbolta í gær eftir 2:0 sigur á útivelli gegn „erkifjendunum“
í Molde. Þetta er í 21. sinn sem Rosenborg fagnar meistaratitlinum í Noregi.
Fjórar umferðir eru eftir í deildarkeppninni en Rosenborg er með 17 stiga
forskot með 19 sigurleiki og 7 jafntefli. Liðið á enn eftir að tapa. Roar Strand
leikmaður Rosenborg varð meistari í 15. sinn á ferlinum en hann hefur einnig
fimm sinnum fagnað bikarmeistaratitlinum. Strand hefur samið við Rosenborg til
eins árs en hann er 39 ára gamall og verður fertugur á næsta ári.