"Strákarnir voru öflugir og grimmir, staðráðnir í að halda sínu striki, og það voru frábærlega útfærðar sóknir sem gáfu okkur þessi mörk," sagði Eyjólfur Sverrisson þjálfari 21-árs landsliðsins í fótbolta við mbl.is eftir sigurinn á Norður-Írum í Grindavík í dag, 2:1.
„Við duttum aðeins niður á milli, þetta var ströggl á köflum og mér fannst aðeins draga af okkur þegar leið á. Norður-Írarnir komu í þennan leik eftir góða hvíld og hjá okkur voru mikil forföll og veikindi. En það kom maður í manns stað, aðrir leikmenn fengu tækifæri og nýttu þau. Strákarnir sýndu góðan karakter í dag og ég kvíði engu, við erum með fullt af ungum og efnilegum leikmönnum sem hægt er að leita til," sagði Eyjólfur.