Leikmannaskipti hjá Keflavík og Fram

Paul McShane mun spila með Keflavík á næstu leiktíð.
Paul McShane mun spila með Keflavík á næstu leiktíð. mbl.is/Golli

Fram og Keflavík hafa gert samkomulag um leikmannaskipti. Skoski miðjumaðurinn Paul McShane fer frá Frömurum til Keflvíkinga og á móti fá Framarar miðjumanninn Jón Gunnar Eysteinsson.

McShane, sem er 31 árs gamall, hefur leikið með Fram undanfarin tvö ár en þar áður lék hann með Grindavík í tíu ár. Hann kom við sögu í 16 leikjum Framara í sumar og skoraði í þeim 1 mark.

Jón Gunnar hefur verið í herbúðum Keflvíkinga undanfarin tvö ár en þangað kom hann frá Fjarðabyggð og lék þar undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar sem er nú er við stjórnvölinn hjá Fram. Hann lék 19 leiki Keflvíkinga í Pepsi-deildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark. Hann er 23 ára gamall.

 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert