Andri gerði nýjan 3ja ára samning við ÍBV

Andri í baráttunni með ÍBV gegn Breiðabliki í sumar.
Andri í baráttunni með ÍBV gegn Breiðabliki í sumar. mbl.is/Sigfús Gunnar

Sögusagnir þess efnis að Andri Ólafsson fyrirliði ÍBV væri á förum til Grindavíkur reyndust ekki á rökum reistar því fram kemur á vef ÍBV í kvöld að Andri hafi gert nýjan þriggja ára samning við Eyjamenn.

Andri, sem er 24 ára gamall, hefur á síðustu átta árum leikið 136 leiki fyrir ÍBV og skorað í þeim 18 mörk og er leikjahæsti núverandi leikmaður félagsins að því fram kemur á vef ÍBV.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert