Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Mónakó urðu að sætta sig við markalaust jafntefli við Grenoble í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld. Þar með hlaut Grenoble sitt fyrsta stig í deildinni en liðið hafði tapað öllum 11 leikjum sínum.
Eiður lék sinn fyrsta leik í þrjár vikur en hann hefur átt við axlarmeiðsli að stríða. Hann lék fyrsta klukkutímann og hafði frekar hægt um sig eins og allir félagar hans en þeir fáu stuðningsmenn Mónakó sem mættu á Stade de Louis völlinn í furstaríkinu púuðu á leikmenn Mónakó þegar flautað var til leiksloka.