Gautaborg lá aftur fyrir AIK

Hjálmar Jónsson í leik með Gautaborg.
Hjálmar Jónsson í leik með Gautaborg. Heimasíða Gautaborgar

Íslendingaliðið IFK Gautaborg varð að sætta sig við 2:0 tap gegn AIK í úrslitaleik sænsku bikarkeppninnar í knattspyrnu en liðin áttust við á Råsunda vellinum í Stokkhólmi. Ragnar Sigurðsson, Theódór Elmar Bjarnason og Hjálmar Jónsson léku allir með Gautaborg sem tókst ekki að hefna ófaranna því um síðustu helgi hafði AIK betur, 2:1, í hreinum úrslitaleik liðanna um sænska meistaratitilinn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert