Liz Lambert varnarmaður háskólaliðs Nýju Mexíkó í bandaríska kvennafótboltanum var í dag úrskurðuð í keppnisbann af forráðamönnum skólans. Myndband af brotum hennar í leik gegn Brigham Young hafa vakið gríðarlega athygli.
Lambert sýnir þar af sér gríðarlega fólsku og eftir að myndbrot frá leiknum voru birt á Internetinu tóku skólayfirvöld á málinu. Lambert fékk aðeins eitt gult spjald í leiknum sem lið hennar tapaði 1:0 og er ótrúlegt að hún hafi fengið að klára leikinn án þess að fá rautt spjald.
Lambert hefur beðist afsökunar á hegðun sinni en það dugði ekki til.