,,Ég tileinka þessa viðurkenningu fjölskyldu minni og samherjum í liðinu," sagði Argentínumaðurinn Lionel Messi við fréttamenn í dag eftir að greint var frá því að hann hefði unnið yfirburðarsigur í kosingu á knattspyrnumanns ársins í Evrópu.
,,Ég er virkilega ánægður með þessi verðlaun og þá glæsilegu kosningu sem ég hlaut. Ég tileinka verðlaunin fjölskyldu minni, sem alltaf hefur stutt við bakið á mér, og samherjum mínum hjá Barcelona sem hafa gert allt til tryggja það að ég gæti unnið þessi verðlaun,“ sagði Messi.
,,Þjálfarinn minn, Pep Guardiola, á einnig stóran þátt í þessu en allir þeir titlar sem við unnum á síðustu leiktíð voru lykillinn að því að ég stóð uppi sem sigurvegari í þessu kjöri,“ sagði hinn 22 ára gamli Messi.