Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í Mónakó máttu þola 4:0 tap á heimavelli gegn Lille í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Eiður lék fyrstu 61 mínútuna í liði Mónakó sem er því áfram í 12. sæti deildarinnar.
Eiður fékk ekki góða dóma fyrir frammistöðu sína hjá franska íþróttablaðinu lequipe en það gaf honum 2 í einkunn. Einn annar leikmaður Mónakó fékk 2 en hinir fengu 3 og 4.