Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í leikmannahópi Mónakó fyrir leik liðsins gegn Rennes í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu sem fram fer á heimavelli Mónakó í kvöld.
Hópurinn er birtur á vef Mónakó og Eiður er ekki á meðal þeirra 18 sem valdir eru í hópinn í kvöld, og ekki heldur meðal sex annarra leikmanna sem taldir eru upp sem forfallaðir að þessu sinni.
Eiður hefur ekki náð sér á strik með Mónakó enn sem kominn er og var tekinn af velli eftir rúmar 60 mínútur á sunnudaginn þegar liðið steinlá gegn Lille, 0:4.