Þannig kusu Íslendingarnir hjá FIFA

Marta og Lionel Messi með verðlaun sín á hátíðinni í …
Marta og Lionel Messi með verðlaun sín á hátíðinni í Zürich í kvöld. Reuters

Fjórir Íslendingar tóku þátt í atkvæðagreiðslunni um knattspyrnufólk ársins hjá FIFA en kjörinu var lýst í Zürich í kvöld eins og áður hefur komið fram. Það voru landsliðsþjálfararnir Ólafur Jóhannesson og Sigurður Ragnar Eyjólfsson og landsliðsfyrirliðarnir Hermann Hreiðarsson og Katrín Jónsdóttir.

Á  vef FIFA í kvöld var birt hvernig hver einstaklingur í kjörinu hefði varið atkvæðum sínum. Íslendingarnir fjórir kusu þannig:

Ólafur Jóhannesson:
1. Lionel Messi
2. Cristiano Ronaldo
3. Andrés Iniesta

Hermann Hreiðarsson:
1. Lionel Messi
2. Wayne Rooney
3. Andrés Iniesta

Sigurður Ragnar Eyjólfsson:
1. Marta
2. Kelly Smith
3. Inka Grings

Katrín Jónsdóttir:
1. Birgit Prinz
2. Nadine Angerer
3. Inka Grings

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert