Eiður Smári Guðjohnsen skoraði sitt fyrsta mark fyrir franska liðið Mónakó í gær þegar liðið sigraði 3. deildarliðið Saint-Raphaël í æfingaleik sem háður var í bænum Cogolin.
Eiður skoraði þriðja mark liðsins en hann lék allan seinni hálfleikinn. Eiður skoraði markið af stuttu færi eftir slæm mistök varnarmanns og markvarðar Saint-Raphaël.