Eiður með Mónakó til Parísar

Eiður Smári verður á ferð í París í kvöld.
Eiður Smári verður á ferð í París í kvöld. Reuters

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Mónakó sem sækir París SG heim í frönsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld en leikur liðanna hefst klukkan 18 á Parc de Princes í franska höfuðstaðnum.

Eiður Smári fékk á ný tækifæri með Mónakó eftir nokkurt hlé um síðustu helgi en hann spilaði þá síðasta hálftímann í sigurleik liðsins gegn Sochaux, 2:0.

Mónakó er í 6. sæti 1. deildarinnar með 33 stig, aðeins fjórum stigum á eftir Lille sem er í 2. sæti. París SC er í 10. sætinu með 29 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert