Guardiola framlengir hjá Barcelona

Pep Guardiola verður um kyrrt í Barcelona.
Pep Guardiola verður um kyrrt í Barcelona. Reuters

Pep Guardiola, þjálfari Evrópu- og Spánarmeistara Barcelona í knattspyrnu, hefur framlengt samning sinn við félagið um eitt ár, eða framí júní 2011.

Óvissa hefur verið um framhaldið hjá Guardiola að undanförnu en núgildandi samningur hans rennur út í júní. Undir hans stjórn vann félagið alla þá sex titla sem í  boði voru árið 2009.

Josep Guardiola, sem varð 39 ára á mánudaginn, tók við liði Barcelona sumarið 2008 af Frank Rijkaard. Hann lék sjálfur með liðinu í ellefu ár, frá 1990 til 2001, og lék 47 landsleiki fyrir Spán en spilaði síðan um skeið á Ítalíu. Guardiola kom á ný til Barcelona árið 2007 og þjálfaði varalið félagsins í eitt ár áður en hann tók við aðalliðinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert