Rúmenski knattspyrnumaðurinn Adrian Mutu, sem leikur með ítalska liðinu Fiorentina, féll á lyfjaprófi, sem tekið var eftir leik liðsins gegn Bari í byrjun janúar. Ítalska ólympíunefndin segir, að lyfjaprófið hafi leitt í ljós að Mutu notaði ólöglegt lyf.