Tógó í tveggja móta bann

Adebayor og félagar urðu fyrir skelfilegri lífsreynslu skömmu fyrir Afríkumótið …
Adebayor og félagar urðu fyrir skelfilegri lífsreynslu skömmu fyrir Afríkumótið í ár. Reuters

Emmanuel Adebayor og félagar í landsliði Tógó munu ekki taka þátt í næstu tveimur Afríkumótum landsliða samkvæmt niðurstöðu afríska knattspyrnusambandsins sem dæmt hefur Tógó í bann fyrir að draga sig úr úrslitakeppninni sem nú stendur yfir.

Bannið nær sem áður segir yfir næstu tvö mót en Tógó hætti við keppni í ár eftir að vopnaðir hryðjuverkamenn höfðu ráðist á rútu liðsins í Angóla skömmu fyrir mót og orðið þremur að bana.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert