Eyþór með fjögur fyrir ÍBV

Eyþór Helgi Birgisson skoraði fjögur mörk fyrir ÍBV.
Eyþór Helgi Birgisson skoraði fjögur mörk fyrir ÍBV. mbl.is

Eyþór Helgi Birgisson skoraði fjögur mörk fyrir ÍBV þegar liðið vann stórsigur á ÍR, 6:0, í deildabikarnum í knattspyrnu í dag en leikurinn fór fram í Egilshöllinni.

Eyþór, sem er í láni hjá ÍBV frá HK, skoraði eina mark fyrri hálfleiks og gerði síðan þrennu á rúmum 15 mínútum í seinni hálfleiknum. Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Aron Ásgeirsson skoruðu hin tvö mörk Eyjamanna í leiknum.

Leikskýrslan.

Liðin eru í 3. riðli A-deildar ásamt KR, Keflavík, Breiðabliki, Þrótti R., HK og Gróttu en þetta var fyrsti leikurinn í riðlinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert