SportTV hefur gengið frá samningum við KSÍ og Sportfive um að sýna Lengjubikarinn í fótbolta í beinni á vefnum SportTV.is. Skrifað var undir samninga þess efnis seint í gær miðvikudag og því er ekkert sem kemur í veg fyrir að fyrsta útsendingin getur farið á loftið á morgun föstudag.
Fyrsti leikurinn verður í beinni á morgun föstudag þegar ÍBV og KR mætast klukkan 21:00 í Egilshöllinni. Eyjamenn hófu mótið með látum og KR-ingar hafa leikið liða best í vetur og ætla sér stóra hluti á árinu.