Bayern München leikur til úrslita í Meistaradeild Evrópu í næsta mánuði gegn annað hvort ríkjandi Evrópumeisturum Barcelona eða Inter frá Mílanó. Þetta varð ljóst í kvöld eftir að Bayern vann franska liðið Lyon, 3:0, í síðari leik liðanna sem fram fór í Frakklandi. Samtals unnu Bæjarar 4:0 í leikjunum tveimur í undanúrslit.
Króatinn Ivica Olic skoraði öll þrjú mörk Bayern í kvöld gegn fremur máttlitlum leikmönnum Lyon sem lengst höfðu ekki uppi mikla burði til þess að vinna leikinn. Ekki bætti úr skák hjá Lyon þegar Cris var sýnt gula spjaldið annað öðru sinni í leiknum hálftíma fyrir leikslok.