Eyjólfur á skotskónum

Eyjólfur Héðinsson.
Eyjólfur Héðinsson. gais.se

Eyjólfur Héðinsson var á skotskónum í kvöld þegar hann skoraði bæði mörk GAIS í 2:0 sigri liðsins á Häcken á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Eyjólfur skoraði fyrra mark sitt á 43. mínútu og hið  síðara 15 mínútum síðar.

Hallgrímur Jónasson var einnig í byrjunarliði GAIS og lék leikinn allt til enda eins Eyjólfur. GAIS er í 5. sæti deildarinnar með 14 stig að loknum níu leikjum. 

Jónas Guðni Sævarsson var ekki í leikmannahópi Halmstad þegar liðið vann Gefle, 1:0, á heimavelli en hann varð fyrir meiðslum í síðasta leik og náði ekki að jafna sig í tæka tíð fyrir leikinn í kvöld. Halmstad er í sætinu fyrir neðan GAIS með 14 stig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert