Birkir Bjarnason og Björn Bergmann Sigurðarson voru báðir á skotskónum með liðum sínum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.
Birkir, sem verið hefur frá vegna meiðsla í rúman mánuð, sneri aftur til leiks með stæl og gerði jöfnunarmark Viking gegn Kongsvinger.
Björn skoraði hins vegar annað mark Lilleström í 4:0 sigri á Sandefjord.